Orri Freyr með stórleik og önnur úrslit kvöldsins í Meistaradeildinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Orri Freyr var markahæstur á vellinum með 12 mörk ((ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP)

Fimm leikir fóru fram í níundu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar þar sem 6 Íslendingar voru í eldlínunni.

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barca unnu stórsigur á GOG í heimsókn þeirra til Danmerkur. Viktor Gísli var hinsvegar ekki í leikmannahópi Barca í kvöld.

Janus Daði Smárason og félagar í Pick Szeged unnu 32-26 sigur á HC Zagreb. Janus Daði var mættur aftur til leiks eftir meiðsli og skoraði hann 2 mörk.

Wisla Plock unnu nokkuð óvæntan 29-30 sigur á PSG í París. Michal Daszek var markahæstur í liði Wisla Plock með 7 mörk og Elohim Prandi var markahæstur í liði PSG með 9 mörk.

Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting unnu stórsigur á Benedikti Gunnari Óskarssyni og Sigvaldi Birni Guðjónsson og félögum í Kolstad 44-31. Orri Freyr átti stórkostlegan leik og skoraði 12 mörk. Sigvaldi Björn skoraði 2 en Benedikt Gunnar komst ekki á blað í kvöld.

Þá unnu Fuchse Berlin 38-34 sigur á Bjarka Má Elíssyni og félögum í Veszprém. Bjarki Már lék þó ekki með Vesprém í kvöld en Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson voru mættir til Berlínar til þess að dæma leikinn.

Úrslit kvöldsins og staðan í riðlunum:
A riðill:
Sporting - Kolstad 44-31
Fuchse Berlin - Veszprém 38-34

Standings provided by Sofascore

B riðill:
GOG - Barca 28-41
Pick Szeged - HC Zagreb 32-26
PSG - Wisla Plock 29-30

Standings provided by Sofascore

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 22
Scroll to Top