Ásbjörn Friðriksson spilandi aðstoðarþjálfari FH í Olís-deild karla hefur sett skóna í hilluna eins og hann orðaði það í samtali við Handkastið. Ásbjörn hefur legið undir feldi en orðrómur var um það undir lok síðasta tímabils að Ásbjörn væri að íhuga að leggja skóna á hilluna. Nú hefur hann staðfest að skórnir séu komnir í hilluna en ekki endilega á hilluna. Ási gekk í raðir FH árið 2008 og hefur leikið með félaginu síðan þá, að undanskildu einu tímabili þar sem hann lék í Svíþjóð með Alingsås. Ásbjörn hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari með FH, árið 2011 og 2024 auk þess sem hann varð bikarmeistari með FH árið 2019. Ásbjörn var lykilmaður í liði FH á síðustu leiktíð og endaði sem næst markahæsti leikmaður liðsins með 138 mörk en einungis Jóhannes Berg Andrason skoraði fleiri mörk eða, 140 talsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.