Eyþór Lárusson, þjálfari Selfoss, var svekktur með sjö marka tap gegn Haukum í Olís deild kvenna í kvöld. Hann segir sjö marka tap ekki gefa alveg rétta mynd af leiknum en Selfoss liðið gaf eftir á lokamínútunum. Þá ræddi hann einnig mótafyrirkomulagið í deildinni en framundan er pása fram í miðjan janúar, þó liðið sé nýkomið úr HM pásu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.