Andri Snær stýrði KA til sigurs á Norden Cup
{{brizy_dc_image_alt entityId=

IMG_4826 (

Strákarnir í 5.flokki eldri í KA urðu í dag Norden Cup meistarar er liðið vann sænskaliðið, Kärra 18-16 í úrslitaleik mótsins.

KA vann alla leiki sína á mótinu en liðið vann norska liðið, Kolbotn í undanúrslitum 25-13 og danska liðið HEI í 8-liða úrslitum 20-19.

Þjálfari liðsins er Andri Snær Stefánsson þjálfari meistaraflokks lið KA. Fyrr í dag vann KA/Þór Norden Cup í sama aldursflokki og varð þar með annað íslenska liðið til að vinna mótið í kvennaflokki.

Norden Cup er óopinbert norðurlandamót sem haldið er í Gautaborg á hverju ári þar sem lið frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi mætast innbyrðis. Venjan er að bestu íslensku lið landsins í sínum aldursflokki mæti á mótið en Ísland átti þónokkur lið á mótinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 14
Scroll to Top