Verður Selfyssingurinn Árni Þór kjörinn íþróttaeldhugi ársins hjá ÍSÍ?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Árni Þór Grétarsson (

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samvinnu við Lottó, stendur fyrir kjöri á Íþróttaeldhuga ársins samhliða kjöri á Íþróttamanni ársins þann 3. janúar næstkomandi. Íþróttaeldhugi ársins er valinn úr röðum sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni, sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarfið í sínu nærumhverfi eða á landinu öllu.

Kallað var eftir tilnefningum úr hreyfingunni og frá landsmönnum og bárust alls 208 tilnefningar um 116 einstaklinga úr 25 íþróttagreinum. Úr röðum þeirra hefur sérstök valnefnd valið þrjá einstaklinga og mun einn þeirra hljóta heiðursviðurkenninguna Íþróttaeldhugi ársins 2025. Tilkynnt verður um úrslitin, eins og áður sagði, í hófi um kjör Íþróttamanns ársins 2025.
Valnefndin var skipuð þeim Þóreyju Eddu Elísdóttur formanni, Degi Sigurðssyni, Einari Ólafssyni, Kristínu Rós Hákonardóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur.

Að lokum voru það 3 einstaklingar sem valnefndin valdi úr röðum fjölmargra innsendra tilnefninga. Einn þeirra er Selfyssingurinn Árni Þór Grétarsson sem hefur unnið gríðarlega mikið og gott sjálfboðaliðastarf fyrir Handknattleiksdeild Selfoss í áratugi.

"Hann er alltaf til staðar, mætir á alla leiki – heima og að heiman – og tekur að sér
öll þau verkefni sem þarf að sinna, hvort sem það er lýsing á leikjum, auglýsingagerð,
aðstoð við ferðalög eða skipulagningu. Hann gerir þetta allt með jákvæðu hugarfari og
brosi á vör. Árni hefur séð um samfélagsmiðla, hlaðvörp, útsendingar á leikjum og verið liðstjóri
bæði hjá meistaraflokki og yngri flokkum. Hann ferðast með liðum innanlands og
erlendis, tekur þátt í fjáröflunum og er meira og minna í íþróttahúsinu allan daginn.
Hann er til fyrirmyndar í samskiptum og hefur haft djúpstæð áhrif á fjölda ungra iðkenda
sem líta upp til hans sem fyrirmynd og leiðtoga"
segir orðrétt á vefsíðu ÍSÍ um Árna Þór.

Tilkynnt verður um valið þann 3. janúar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 19
Scroll to Top