Flensburg og Füchse Berlin berjast um þýskan landsliðsmann
BERND WEISSBROD / dpa Picture-Alliance via AFP

Samkvæmt þýska miðlinum SHZ eru þýsku meistararnir í Füchse Berlin og Flensburg að berjast um þýska landsliðsmanninn og leikmann Hannover, Justus Fischer.

Miðilinn greinir einnig frá því að áhugi á Fischer er ekki einungis hjá Flensburg og Füchse Berlin heldur er hann á radar hjá mörgum af topp liðunum í Þýskalandi.

Justus er línumaður og hefur hann stimplað sig inn í þýska landsliðið með stöðugum og góðum frammistöðum síðustu tímabil.

Á þessu tímabili hefur Fischer skorað 68 mörk í 16 leikjum með liði sínu Hannover sem hefur ekki náð sér á strik miðað við tímabilið á undan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top