Hinn 36 ára gamli markmaður Aron Rafn Eðvarðsson er íþróttakarl Knattspyrnufélagsins Hauka árið 2025. Félagið var með viðurkenningahóf á gamlársdag á Ásvöllum. Síðasta keppnistímabil, 2024-2025 var frábært hjá Aroni Rafni. Hann ætlaði að hætta handknattleiksiðkun síðastliðið sumar en hætti við að hætta og hefur verið að spila vel síðustu mánuði hjá Haukum. En leiða má líkum að því að þetta sé hans allra síðasta keppnistímabil.
Handkastið óskar Aroni til hamingju með valið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.