Gísli Þorgeir gekk í hnapphelduna á gamlársdag

Landsliðsmaðurinn og handboltamaður ársins 2025, Gísli Þorgeir Kristjánsson, átti einkar eftirminnilegan dag í gær á gamlársdag.

Hann og unnusta hans, Rannveig Bjarnadóttir, ákváðu að nýta tækifærið og gifta sig óvænt án þess að henda í stórt brúðkaup. Líkt og Rannveig sagði á Instagram reikningi sínum að þá lýsti hún giftingunni sem "lítilli athöfn bara fyrir þau" en bað svo fólk um að undirbúa sig fyrir partý árið 2027.

Hjónin voru áður búin að trúlofa sig þann 30. nóvember. Þau hafa verið saman í átta ár og búa saman í Þýskalandi.

Handkastið óskar Gísla Þorgeiri og Rannveigu innilega til hamingju með ráðahaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top