Við höfum fengið alvöru liðstyrk
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tónlistarmaðurinn, Hreimur Örn Heimisson mun sjá um að rífa í gang stemninguna á svokölluðu Fan-Zonei Íslendinga fyrir leiki Íslands í riðlakeppninni á Evrópumótinu í Kristianstad.

Það er Tinna Mark Duffield sem segir frá þessu á Facebookar-síðu stuðningsmanna Íslands. 

,,Við höfum fengið alvöru liðstyrk,” segir Tinna Mark og segir síðan frá því að Hreimur Örn muni hita upp fyrir leikina áður en haldið er í keppnishöllina í Kristianstad. Íslendingar kunna vel við sig í Kristianstad en íslenska landsliðið lék einnig í riðlakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fór árið 2023 í Svíþjóð í sömu höll. Þar myndaðist gríðarleg stemning meðal íslensku stuðningsmannana, stemning sem íslensku strákarnir okkar hafa minnst sem ein af eftirminnilegustu stemningu sem þeir muna eftir.

Það er gert ráð fyrir í kringum 2500 Íslendingum á leikjum Íslands í riðlakeppninni á Evrópumótinu en fyrsti leikur Íslands er gegn Ítalíu á morgun klukkan 17:00 á íslenskum tíma.

Næst mætir liðið Póllandi á sunnudaginn og loks Ungverjalandi á þriðjudaginn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top