
Ísland (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)
Upp er komin sú umræða á samfélagsmiðlum að uppselt sé orðið á úrslitaleikinn á heimsmeistaramótinu á næsta ári þrátt fyrir að enn eigi eftir að draga í riðla og enn er ekki orðið ljóst hvaða þjóðir taka þátt í mótinu. Mótið fer fram í Þýskalandi þar sem mikil og rík handboltahefð er fyrir hendi. Umræðan á samfélagsmiðlum kemur ekki upp að ástæðulausu en mikil gremja er í íslenskum stuðningsmönnum yfir miðasölumálum í kringum úrslitahelgina á Evrópumótinu sem fer fram um helgina. Tæplega 200 íslenskir áhorfendur voru á undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur í Herning í Danmörku í gær sem tekur 14.500 manns í sæti. Til að setja þetta í samhengi þá voru rúmlega 2.500 íslenskir stuðningsmenn mættir á fyrsta leik Íslands á mótinu gegn Ítalíu í riðlakeppninni í Kristianstad fyrir rúmlega tveimur vikum síðan. Miðasala á leiki heimsmeistaramótsins í Þýskalandi á næsta ári er hafin og ef farið er á miðasölu síðuna kemur fram að ekki sé aðgengilegir miðar á úrslitahelgina sem fram fer í Lanxess Arena í Köln. Fullyrt hefur verið á samfélagsmiðlinum X að staðan sé einfaldlega sú, að uppselt sé á úrslitahelgina. Úrslitahelgin á heimsmeistaramótinu 2027 fer fram dagana 29.-31. janúar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.