Óðinn Þór Ríkharðsson (JOHAN NILSSON / TT NYHETSBYRÅN / TT News Agency via AFP)
Stuðningsmaður íslenska karlalandsliðsins í handbolta var handtekinn í keppnishöllinni í Herning í Danmörku í gær er Ísland lék í undanúrslitum Evrópumótsins gegn Danmörku. Danir höfðu betur í leiknum 31-28 og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaleik keppninnar. Það er MBL.is sem greinir frá. Þar segir að atvikið hafi átt sér stað undir lok leiksins. ,,Ljósmyndari mbl.is og Morgunblaðsins var á leiðinni niður á völl til þess að mynda lokamínútur leiksins þegar hann varð vitni að atvikinu. Íslenski stuðningsmaðurinn lá þá handjárnaður á jörðinni og var umkringdur bæði lögreglumönnum og öryggisvörðum í keppnishöllinni," segir í frétt MBL.is um málið. Er þetta í annað sitt á meðan Evrópumótinu stendur sem íslenskur stuðningsmaður er handjárnaður en sama gerðist í Kristianstad er íslenska landsliðið lék í riðlakeppni mótsins. Sá einstaklingur var handtekinn í miðbæ Kristianstad. Ísland leikur lokaleik sinn á Evrópumótinu á morgun klukkan 14:15 er Ísland mætir Króatíu í leik um bronsið. Það er vonandi að enginn stuðningsmaður Íslands verði handtekinn á þeim leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.