Stórsigur ÍBV fyrir norðan
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sandra Erlingsdóttir - wÍBV (Sævar Jónasson)

KA/Þór fékk ÍBV í heimsókn til sín á Akureyri í lokaleik 16.umferðar Olís deildar kvenna í dag.

Leikurinn byrjaði jafn og voru liðin að skiptast á að taka forystu í leiknum en það var svo um miðbik fyrri hálfleiks sem Eyjastelpur settu í fluggírinn og skildu KA/Þór eftir. ÍBV breytti stöðunni úr 8-8 í 8-12 og litu aldrei um öxl eftir það.

Staðan í hálfleik var 11-18 ÍBV í vil.

ÍBV hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og náði mest 11 marka forskoti. Markverðir KA/Þór náðu sér ekki á strik í leiknum og vörðu þær einungis fimm skot. ÍBV vann að lokum tíu marka sigur, 22-32, og heldur áfram eltingarleik sínum við Val í Olís deildinni.

Susanne Denise Pettersen var markahæst hjá KA/Þór í dag með 5 mörk en hjá ÍBV var Sandra Erlingsdóttir frábær með 8 skot úr 8 skotum ásamt því að gefa 3 stoðsendingar.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top