Fyrsta umferð Olís-deildar karla eftir EM leikin í kyrrþey
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Valdimar Örn Ingvarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Það hefur ekki farið mikið fyrir því á samfélagsmiðlum né heimasíðu Handknattleikssambands Íslands, HSÍ að Olís-deild karla er farin af stað eftir 51 daga pásu.

16.umferðin í Olís-deild karla fór af stað í gær með þremur hörkuleikjum og umferðin lýkur síðan í kvöld með þremur athyglisverðum leikjum þar sem meðal annars mætast Valur og Haukar í toppslag Olís-deildarinnar, tvö lið sem margir spá góðu gengi í úrslitakeppninni.

Það virðist hinsvegar vera EM-þynnka yfir skrifstofu HSÍ eftir langan og strangan janúar þar sem Strákarnir okkar í íslenska karla landsliðinu fóru alla leið í undanúrslit Evrópumótsins en þurftu að sætta sig við 4.sætið eftir tap gegn Dönum í undanúrslitum og gegn Króatíu í leik um bronsið. Samt sem áður frábær árangur og áhuginn hjá íslensku þjóðinni aldrei verið meiri og var slegið áhorfsmet á hvern leikinn á fætur öðrum hjá RÚV.

HSÍ virðist hinsvegar enn eitt árið sofa á verðinum hvað varðar Olís-deildina því það er ekkert nýtt á nálinni að þegar Olís-deild karla fer af stað eftir stórmót hjá íslenska karla landsliðinu sem er árlega, þá virðist litla krúttlega Olís-deildin gleymast. Og það virðist engu skipta þó búið sé að skipta um menn í brúnni og gott betur en það.

Það verður fróðlegt að sjá hvort HSÍ taki upp á því að nota fátækarkortið þegar forsvarsmenn HSÍ afsaka sig í þetta skiptið. Því yfirleitt virðist vera töluvert styttra í fátækakortið hjá forsvarsmönnum HSÍ heldur en að líta í eigin barm og bera ábyrgð.

Handboltinn á Íslandi verður aldrei stærri en HSÍ. HSÍ er félögin í landinu - eða eins og Rósmundur Magnússon góðvinur Handkastsins sagði á Facebook síðu Handkastsins í gærkvöldi: HSÍ er félögin en ekki landsliðið.

,,Enn og aftur gerir HSÍ ekkert að gíra upp fyrstu umferð í Olís eftir áramót. Nýir menn í brúnni en greinilega sömu pappakassarnir. Skoðið heimasíðu HSÍ ekki orð. HSÍ er félögin ekki landsliðið. En ekki aftur sem ég fann um þetta. Biðst afsökunar ef þetta er rangt," skrifaði Rósmundur Magnússon á Handkastið - Þjóðaríþróttin á Facebook.

Undirritaður tekur undir orð Rósmundar að mestu leyti.

16.umferðin í Olís-deild karla lýkur í kvöld:
18:30 Stjarnan - Þór (Handboltapassinn)
19:30 Valur - Haukar (Í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans)
20:15 Fram - Afturelding

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top