Gísli Rúnar Jóhannsson ((Þorgils Garðar Gunnþórsson)
Við heyrðum aðeins í Gísla Rúnari Jóhannssyni sem er á mála hjá Aftureldingu og spurðum hann hvað væri að frétta af hans meiðslum og hvernig staðan á honum væri. Gísli Rúnar verður 21 árs á árinu og leikur yfirleitt í stöðu leikstjórnanda. Á meðan Gísli glímir við meiðslin einbeitir hann sér að þjálfun 5. flokks karla hjá Aftureldingu og námi í íþróttafræðum við HR. ,,Staðan á mér í dag er klárlega góð og á leið í rétta átt, ég er farinn að geta verið með í flestu á æfingum algjörlega verkjalaust en reyni að fara varlega í þetta þar sem ég vill ekki vera að taka séns á því að fara of snemma af stað."
,,Þetta hefur verið ákveðinn tröppu gangur í ákefð æfinga og reyni ég að fara bara skref fyrir skref áfram í átt að 100% bata og 100% spilforms. Bataferlið eða endurhæfingin hefur gengið vel en verið aðeins hægari en ég hefði vonað. Sannleikurinn er bara sá að eftir svona aðgerð, eða svona meiðsli þá er bataferlið svolítið persónubundið og getur tekið lengri tíma fyrir suma en aðra. Þess vegna hef ég bara þurft að vera þolinmóður, duglegur og agaður að vinna í þessu."
,,Ég hef auðvitað verið í stöðugum tímum hjá sjúkraþjálfara til að reyna vinna í endurhæfingunni sem hefur gengið yndislega, láta liðka, nudda, hnykkja, rafstuð og allt þetta klassíska sem hefur auðvitað hjálpað mikið. En eins og staðan er í dag þá er ég á flottum stað og fer vonandi að sjá parketið bráðum."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.