Ólöf og Selma (
Afar skemmtileg staða kom upp í leik KA/Þórs og ÍBV í dag í KA heimilinu að mæðgurnar Selma Sigurðardóttir og Ólöf Maren Bjarnadóttir mættust. Selma er í KA/Þór og Ólöf Maren í ÍBV.
Mæðgurnar leika báðar í stöðu markmanns. Ólöf Maren varði 2 skot í dag og móðir hennar Selma varði 1 skot.
Selma tók fram skóna á nýjan leik fyrir stuttu eftir að Matea Lonac meiddist nú á dögunum.
Leikur KA/Þór og ÍBV endaði 22-32 fyrir ÍBV eftir að staðan hafði verið 11-18 í hálfleik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.