Tryggvi Þórisson (Elverum)
Tvö Íslendingalið áttu leik í kvöld í norsku deildinni en Elverum komust aftur einir á topp deildarinnar eftir sigur á Halden á útivelli, 26-35. Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir liðið sem er tveimur stigum fyrir ofan Kolstad með 29 stig. Drammen tók á móti Runar en með sigri hefðu Drammen jafnað Runar og Bergen að stigum í þriðja til fimmta sæti. Það gekk þó ekki eftir og Runar unnu gríðarlega öflugan útisigur, 28-34. Ísak Steinsson var í marki heimamanna meirihluta leiksins og varði sex skot af þeim tuttugu og níu sem hann fékk á sig eða 21% markvarsla. Úrslit kvöldsins: Halden 26-35 Elverum Drammen 28-34 Runar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.