Danska liðið HØJ Elite hafa ráðið Anders Thomsen sem þjálfara liðsins eftir að liðið lét Stian Tønnesen og aðstoðarþjálfaran Patrik Liljestrand fara. Liðinu hefur gengið mjög erfiðlega upp á síðkastið og eru til að mynda án sigurs í síðustu 6 leikjum. Liðið vann síðast leik í deildinni þann 20. nóvember sl. Tønnesen og teymi hans var látið taka poka sinn eftir 23-27 tap gegn GOG en HØJ hafa nú fundið eftirmann hans í Anders Thomsen. Anders stýrði síðast liði Ribe-Esbjerg en hætti þar vorið 2024. Anders mun stýra liðinu út leiktíðina og verður á hliðarlínunni strax á miðvikudaginn þegar liðið heimsækir Skjern.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.