Klipparinn rýnir í Facebook status Björgvins Páls
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Björgvin Páll - Óskar Bjarni (Sævar Jónasson)

Landsliðsmarkvörðurinn, Björgvin Páll Gústavsson ritaði niður Facebook stöðuuppfærslu í gær morgun þar sem hann fór yfir 19. stórmótið sitt sem lauk um þar síðustu helgi en Björgvin Páll var hluti af íslenska landsliðinu sem keppti um bronsið á Evrópumótinu en tapaði gegn Króatíu.

Facebook status Björgvins Páls má sjá hér að neðan en Stymmi klippari var spurður út í Facebook-uppfærslu Björgvins í nýjasta þætti Handkastsins sem tekinn var upp í morgun.

,,Þegar maður sér EM úr nokkurra daga fjarlægð, gangandi um götur Reykjavíkur og takandi við hamingjuóskum þá þarf ég að koma frá mér EM-uppgjöri. Fyrir mig til að byrja með og kannski fyrir þig kæri lesandi. Mitt nítjanda en líklega mesta krefjandi mót að mörgu leyti, andlega, ekki líkamlega. Rússíbani sem innhélt frábærar frammistöður, dottnir út á miðju móti, síðan enn á lífi, komast í undanúrslit og enda síðan í 4. sæti. Þetta mót hafði uppá allt að bjóða. Persónulega hefði ég viljað gera meira gagn innan vallar og spila stærra hlutverk en sama tíma geri èg mér grein fyrir mínu hlutverki í þessu liði, á þessum tímapunkti og er þakklátur fyrir það. Þrátt fyrir fáar spilaðar mín hefur gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri. Eitthvað sem að ég elska. Elska að leita uppi fólk sem hefur ekki trú á mér og mínum. Það gefur mér orku og kraft til að halda áfram. Það sem var kannski öðruvísi núna en oft áður var að ég fékk ekki mörg tækifæri til þess að losa um þessa orku eða skila henni í vörðum boltum. Það sem situr líka eftir er að börnin mín eru kominn á þann aldur að þau sjá þessa hluti sem um mann eru skrifaðir og sagðir. Það er held ég rosalega merkilegur skóli að upplifa slíka hluti. Sú þjáning gerði það til að mynda að verkum að elsta dóttir mín deildi mynd af mér sem á stóð „For my hero I chose my dad“. Eitthvað sem hreyfði mikið við mér. Í lokin á löngu móti lenti síðan yngsta dóttir mín í því að fá heilahristing og dvelja nóttina á spítala í Danmörku og fékk ég því að eyða nóttinni fyrir bronsleikinn í faðmi hinna þriggja barnanna minna, nokkrum metrum frá hóteli liðsins. Eitthvað sem ég hélt ég myndi aldrei upplifa á stórmóti í handbolta. Stórmóti sem ég geng frá pínu svekktur en stoltur og „enn og aftur hef ég eitthvað til að sanna, eins og lögmaður“ eins og einn af mínum uppáhalds listamönnum, Saint Pete, myndi orða það. Takk fyrir allan stuðninginn, gagnrýnina og ástríðuna. Áfram Ísland."

,,Ég las útúr þessari færslu að hinn venjulegi miðaldra Íslendingur elskar Bjögga og eðlilega. Þetta er orðið árlegt og þetta er örugglega 19. stórmótið sem hann gerir upp með stöðuuppfærslu á samfélagsmiðlum. Ég held að hann hafi gert stöðuuppfærslu eftir hvert einasta mót, mögulega kom sá fyrsti á Myspace," sagði Stymmi en tæplega 3000 manns hafa gefið færslunni viðbrögð og tæplega 200 manns hafa skrifað undir færsluna.

,,Hann kemst ágætlega að þessu, hann er pirraður og fékk að spila lítið en gagnrýnin aldrei verið meiri. Ég fór strax í gamla góða kvíðakastið með morgunbollanum í gær og hugsa hvað maður hafði sagt um Bjögga í janúar en ég held að við höfum verið nokkuð léttir ljúfir og kátir við hann. Ég get samt alveg tekið undir það í lokuðum, eitruðum spjall hópum þá var ofboðslegur pirringur út í Bjögga hjá hinum almenna íþróttaáhugamanni og Twitter logaði. Það voru gerðar grín myndir af honum og ég get alveg ímyndað mér að hann og hans fjölskylda hafi orðið vör við þetta.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top