Norðurlöndin: Amo með mikilvægan sigur í Svíþjóð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Arnar Birkir Hálfdánsson (Amo)

Tveir leikir fóru fram í sænsku deildinni í kvöld en Íslendingaliðið Amo var meðal annars í eldlínunni.

Amo mætti Eskilstuna Guif á útivelli og unnu gríðarlega mikilvægan og góðan sigur, 28-31. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf tvær stoðsendingar en Amo sitja í níunda sæti, tveimur stigum frá topp átta sem fara í úrslitakeppni en aðeins sex umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

Í hinum leik kvöldsins unnu Malmö góðan heimasigur á Önnereds í miklum markaleik, 39-35 en með sigrinum fóru Malmö upp í annað sæti deildarinnar, en þeir eru aðeins einu stigi á eftir Kristianstad. Nikola Roganovic sem við Íslendingar fengum að kynnast á EM og framtíðarlærisveinn Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Gummersbach var besti maður vallarins með níu mörk úr sextán skotum og gaf heilar níu stoðsendingar.

Úrslit kvöldsins:

GUIF 28-31 Amo

Malmö 39-35 Önnereds

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top