Elizabeth Omoregie - CSM Bucharest (Alex Nicodim / NurPhoto via AFP)
Slóvenska landsliðskonan Elizabeth Omoregie mun ganga til liðs við ungverska stórliðið FTC Ferencváros næsta sumar eftir átta ár hjá rúmenska félaginu CSM Bucuresti. Samkvæmt leikstjórnandanum sjálfri var það danski þjálfarinn Jesper Jensen sem átti stærstan þátt í ákvörðuninni. Omoregie segir í viðtali við ungverska miðilinn Nemzeti Sport að hún hafi lengi fylgst með bæði liðinu og vinnubrögðum Jensens. „Ég hef fylgst með FTC í langan tíma, sem og starfi Jespers hjá fyrri liðum hans. Mér líkar vel við þá stefnu sem hann vinnur eftir og hvernig hann hugsar leikinn. Ég trúi því að hann geti náð því besta fram í mér,“ segir Omoregie. Hin 29 ára gamla landsliðskona greinir jafnframt frá því að áhugi hafi áður verið til staðar frá ungverska félaginu. „Það hafði áður verið áhugi, en við fórum aldrei í raunverulegar viðræður og á þeim tíma hafði ég heldur ekki áhuga á félagaskiptum,“ bætir hún við. Omoregie hefur verið einn af lykilleikmönnum CSM undanfarin ár og er meðal markahæstu leikmanna liðsins í Meistaradeild kvenna á þessu tímabili. Hún verður því mikilvæg viðbót fyrir FTC, sem hefur verið í toppbaráttu í Evrópu á undanförnum árum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.