Aron Pálmars nýr aðstoðarþjálfari FH
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Aron Pálmarsson (J.Long)

Aron Pálmarsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari FH í Olís deild karla og mun sinna því starfi út yfirstandandi tímabil.

Aron Pálmarsson er uppalinn í Kaplakrikanum og spilaði með FH síðustu tvö tímabil og varð hann meðal annars Íslandsmeistari með liðinu árið 2024. Aron Pálmarsson setti handboltaskóna á hilluna eftir síðasta tímabil.

,,Einar Andri Einarsson mun áfram vera í þjálfarateymi liðsins en mun í auknu mæli taka að sér önnur verkefni hjá handknattleiksdeildinni,” segir í tilkynningunni frá FH.

FH situr í fjórða sæti deildarinnar og mætir liðið Selfoss í næstu umferð Olís deildarinnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top