Reynir atkvæðamestur í sigri
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Reynir Þór í landsleik á síðasta ári ((Kristinn Steinn Traustason)

Fjórir leikir fóru fram í kvöld í 20.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar sem er kominn aftur af stað eftir um eins og hálfs mánaðar pásu, í kvöld voru fimm íslendingar í eldlínunni.

Fyrsti leikur kvöldsins fór fram þegar Wetzlar tók á móti Füchse Berlin. Leikurinn var jafn til að byrja með þar sem liðin voru stál í stál allt þar til á 20. mínútu þegar Berlin gáfu í og sáu Wetzlar menn ekki til sólar það sem eftir lifði leiks. Leikurinn endaði með sigri Berlin manna þar sem staðan var 27-41, staðan í hálfleik var 13-21. Tobias Grøndahl var atkvæðamestur leikmaður vallarins með 11 mörk.

Annar leikur kvöldsins fór fram er Haukur Þrastar og félagar í Rhein-Neckar Löwen tóku á móti THW Kiel í Sap Arena. Leikurinn var jafn og spennandi nær allan leikinn, þar sem Löwen var sterkari aðilinn og kom sér oft í vægilegar stöður en náðu Kiel alltaf að svara og jafna með góðum áhlaupum endaði leikurinn með eins marks sigri Kiel 27-28. Haukur skoraði 4 mörk og gaf 4 stoðsendingar. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Tim Nothdurft í liði Löwen með 7 mörk úr 7 tilraunum.

Þriðji leikur dagsins fór fram í GETEC Arena heimavelli íslendingaliðs Magdeburg er spútník lið fyrri hluta tímabilsins Lemgo Lippe kom í heimsókn. Magdeburg var sterkari aðilinn í leiknum og leiddu þeir allan leikinn, í seinni hálfleik minnkuðu Lemgo forskotið minnst í fjögur mörk og endaði leikurinn 36-32 eftir að hálfleikstölur voru 19-13. Gísli Þorgeir skoraði 7 mörk og Ómar Ingi 6 mörk.

Seinasti leikur dagsins fór fram í Bergischer er lærisveinar Arnórs Þórs tóku á móti Melsungen. Leikurinn var jafn frá fyrstu til seinustu mínútu þar sem hvorugt lið náði að slíta sig almennilega frá. Leikurinn endaði 26-29 fyrir Melsungen en staðan í hálfleik var 14-16. Reynir Þór var atkvæðamestur í liði Melsungen með 5 mörk á meðan Arnar Freyr komst ekki á blað.

Úrslit dagsins:

Wetzlar-Füchse Berlin 27-41

Rhein-Neckar Löwen-THW Kiel 27-28

Magdeburg-Lemgo Lippe 36-32

Bergischer-Melsungen 26-29

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top