Raul Alonso tekur við Leipzig
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Spænski þjálfarinn, Raul Alonso hefur verið ráðinn þjálfari þýska liðsins SC DHfK Leipzig til næstu tveggja ára. Ráðning hans var tilkynnt af félaginu í morgunsárið.

Alonso tekur við af Rúnari Sigtryggssyni sem sagt var upp störfum hjá félaginu stuttu eftir að síðasta tímabil lauk. Hjá Leipzig leikur Andri Már Rúnarsson, sonur Rúnars en samkvæmt heimildum Handkastsins er hann að vinna í því að losa sig undan samningi hjá félaginu.

Alonso losaði sig undan samningi hjá RK Eurofarm Pelister í Norður-Makedóníu þar sem hann hefur verið þjálfari frá árinu 2024. Hann gerði liðið að meisturum í heimalandinu tvö ár í röð en hann átti ár eftir af samningi sínum við félagið.

Alonso hefur komið víða við á þjálfaraferlinum. Mest megnis hefur hann þó þjálfað í Þýskalandi auk þess að hafa þjálfað í Hvíta-Rússlandi og í Austurríki. Hann þjálfaði HC Erlangen frá sumarinu 2022 fram í nóvember 2024. Ólafur Stefánsson var aðstoðarþjálfari hans hjá Erlangen. Alonso hefur sterkar Íslands tengingar því hann var aðstoðarmaður Alfreðs Gíslasonar hjá THW Kiel í fimm ár, frá 2010 til 2015.

Karsten Günther, framkvæmdastjóri SC DHfK Leipzig, sagði í fréttatilkynningu á heimasíðu félagsins

„Það er mikil heppni að okkur tókst að finna þjálfara svona fljótt sem passar fullkomlega við okkar prófíl og gæti einnig vakið áhuga hjá SC DHfK Leipzig. Raúl þekkir bæði félagið og Bundesliguna og veit nákvæmlega hvað bíður hans. Hann kemur með mikla reynslu og er fullur af orku og skuldbindingu við verkefnið. Við erum sannfærð um að hann geti leyst úr læðingi alla möguleika liðsins okkar og þróað liðið enn frekar ásamt Bastian. Ráðning hans er mikilvægt skref á krefjandi leið okkar til baka til árangurs og við hlökkum til að stíga það skref með Raúl sem aðalþjálfara.“

Raúl Alonso, þjálfari SC DHfK Leipzig hafði þetta að segja í tilkynningu félagsins: „Ég er mjög ánægður með tækifærið hjá SC DHfK Leipzig. Ég þakka þeim fyrir traustið og hlakka til að vinna með liðinu fljótlega og taka næstu skref fram á við saman.“

Leipzig hafnaði í 13. sæti af 18 liðum þýsku 1. deildarinnar á síðustu leiktíð undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top