Grótta með örlögin í sínum höndum – Tökum bara einn leik í einu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Júlíus Þórir Stefánsson (Eyjólfur Garðarsson)

Grótta og HK mættust í Grill 66 deild kvenna í gær og endaði leikurinn með fjögurra marka sigri Gróttu 31-27. Grótta er því komið með örlögin í sínar hendur þegar fjórar umferðir eru eftir af deildinni. Eitt lið fer beint upp og hitt í umspil. Grótta sem féll úr Olís deildinni á síðasta tímabili stefnir beint upp aftur.

Handkastið ræddi við Júlíus Þóri Stefánsson, þjálfara Gróttu eftir sigur liðsins í gær.

,,Góð liðs frammistaða skóp þennan sigur. Vörn og markvarsla hélt nokkuð vel allan leikinn eins og svo oft í vetur. Einnig fannst mér við stíga vel upp síðustyu 10-12 mínúturnar. Lentum í allaskonar mótlæti í þessum leik sem stelpurnar svöruðu vel með því að halda haus allan leikinn."

Hvernig var tilfinningin að vinna þennan leik?
,,Bara góð eins og eftir alla sigur leiki."

Þið eruð núna algjörlega með 1.sætið í ykkar höndum og fjórir leikir eftir. Hvernig leggst það í þig þessir síðustu fjórir leikir?
,,Þeir leggjast bara vel í okkur. Fjórir hörkuleikir framundan sem við þurfum að mæta af fullum kradfti í. En eins og oft áður þá tökum við bara einn leik í einu og sjáum hverjum það skilar okkur."

Grótta mætir Val 2 í næstu umferð á Hlíðarenda en sá leikur verður næstkomandi sunnudag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top