Daníel Berg Grétarsson - Hvíti riddarinn (Eyjólfur Garðarsson)
Í dag mættust Selfoss 2 og Hvíti Riddarinn á Selfossi í Grill 66 deild karla. Fyrri hálfleikur var jafn og skemmtilegur. Enda liðin áþekk að getu og á svipuðum stað í töflunni. Hvíti Riddarinn var þó á köflum einu skrefi framar en Selfoss 2. Í hálfleik var staðan 9-10 fyrir Hvíta Riddarann. Eftir korters leik í seinni hálfleik var Hvíti Riddarinn kominn með 3 marka forskot. Örfáum mínútum seinna jafnaði Selfoss 2 og staðan 20-20 þegar rúmar 10 mínútur var eftir. En á þessum 10 mínútum var Hvíti Riddarinn miklu betri aðilinn á meðan að Selfyssingar áttu í mestu erfiðleikum með að skora. Mosfellingar uppskáru að lokum 6 marka sigur. 22-28 urðu lokatölur. Hjá Selfossi var Dagbjartur Máni Björnsson með 6 mörk. Markvarslan skilaði þeim 11 boltum. Hjá Hvíta Riddaranum var Brynjar Búi og Andri Freyr með 5 mörk hvor. Sigurjón Bragi varði 15 skot. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.