Grótta skoraði 50 mörk í Eyjum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Logi Finnsson - Hannes Grimm (Eyjólfur Garðarsson)

Grótta gerði góða ferð til Vestmannaeyja í 19.umferð í Grill 66 deild karla í dag þegar þeir heimsóttu HBH.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og skiptust liðin á að hafa forskot. Grótta náði þó að síga fram úr þegar fyrri hálfleikur var að klárast og voru með fimm marka forskot í hálfleik, 19-24.

Grótta setti í 5.gír í síðari háflleik og reykspólaði fram úr Eyjamönnum og unnum að lokum öruggan 14 marka sigur, 36-50.

Grótta heldur áfram að fylgja Víking eins og skugginn og eru liðin jöfn á toppi deildinnar með 34 stig en Víkingur hefur áfram betur í innbirgðis viðureignum liðanna.

Bergvin Haraldsson var markahæstur hjá heimamönnum í dag með 11 mörk en hjá gestunum af Seltjarnarnesi var Atli Steinn Arnarson markahæstur með 8 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top