Rytis - Víkingur (Emma Elísa Jónsdóttir)
Í dag mættust HK 2 og Víkingur í Grill 66 deild karla í Kórnum. Þónokkuð jafnræði var til að byrja með í leiknum í dag og náðu HK-ingar aðeins að halda í við Víkingana. Eftir rúmt korter í leiknum komust Víkingar í 6-9. Þá skildu leiðir. Víkingar fóru í 8-12 og síðan og í 8-16. Víkingar fara síðan inn til búningsherbergja með 10 marka forskot. Staðan í hálfleik 10-20. HK-ingar voru aldrei að fara að koma til baka eftir þessar hálfleikstölur. Víkingar fóru svo í 15-27 þegar 15 mín voru eftir. Áfram hélt þetta á þessum nótum og Víkingar slökuðu ekkert á. Urðu lokatölur 27-41 fyrir gestunum úr Safamýrinni. Nú vantar þeim bara nokkra sigra til að fara beint upp í Olís deildina. Það þarf eitthvað mikið að gerast til að það verði ekki niðurstaðan. Hjá Víkingum var Kristófer Snær Þorgeirsson markahæstur með 9 mörk. Markvarslan hjá Rökkva og Daða skilaði þeim 20 boltum vörðum. Hjá HK voru 3 leikmenn með 5 mörk. Þeir Viktor Bjarki, Elmar Franz og Örn. Patrekur Guðni klukkaði 5 bolta í dag. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.