Óðinn Þór Ríkharðsson (Sævar Jónasson)
8 leikir fóru fram í fyrstu umferð milliriðlakeppninnar í Evrópudeildinni í kvöld. 8 Íslendingar voru í eldlínunni í kvöld. Stiven Tobar Valencia átti mjög góðan leik í sigri Benfica á HC Vardar í Portúgal. Stiven skoraði 6 mörk í 40-35 sigri Benfica. Óðinn Þór Ríkharðsson var sem oft áður markahæstur í liði Kadetten Schaffhausen sem unnu góðan útisigur á Fredericia 30-32. Óðinn skoraði 9 mörk úr 10 skotum í kvöld. Tryggvi Þórisson og félagar í Elverum unnu stórsigur á gamla stórveldinu BM Granollers 37-28. Tryggvi skoraði eitt mark í leiknum. Lærisveinar Heiðmars Felixsonar hjá Hannover Burgdorf skóluðu RK Nexe til og unnu góðan 34-28 sigur þar sem Justus Fischer var markahæstur með 9 mörk. Reynir Þór Stefánsson er heldur betur mættur til leiks með Melsungen eftir erfið meiðsli en hann var markahæstur með 7 mörk í 33-29 sigri liðsins á Einari Braga Aðalsteinssyni og félögum í IFK Kristianstad. Einar Bragi skoraði 5 mörk og Arnar Freyr skoraði eitt af línunni með Melsungen. Liðsfélagar Kristjáns Arnar Kristjánssonar (Donna) stóðu vaktina og unnu 28-33 sigur á Þorsteini Leó og félögum í Porto í heimsókn þeirra til Portúgals. Þorsteinn Leó náði ekki að skora þrátt fyrir eina tilraun og Donni er frá vegna kviðslita. Önnur úrslit:
Montpellier - Bidasoa Irun 38-33
Flensburg - Kiel 30-32

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.