Norðurlöndin: Sävehof með sigur í Íslendingaslag
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elín Klara Þorkelsdóttir - Ísland (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Það var boðið uppá Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni kvenna megin þegar Kristianstad tók á móti efsta liðinu, Sävehof.

Það reyndist erfitt verkefni fyrir heimakonur sem áttu ekki mörg svör við leik gestanna sem eru í góðu formi þessa dagana og þær héldu því áfram með góðum níu marka sigri, 27-36. Elín Klara Þorkelsdóttir eins og oft áður í vetur var maður leiksins í dag en hún skoraði átta mörk úr níu skotum þar af eitt mark úr víti, gaf einnig þrjár stoðsendingar og fékk að auki eina brottvísun. Hjá heimakonum skoraði Berta Rut Harðardóttir fjögur mörk úr fimm skotum og gaf þrjár stoðsendingar að auki.

Einn leikur var á dagskránni í Noregi í kvöld þar sem Drammen unnu góðan sigur á Kristiansand í miklum markaleik, 46-35. Ísak Steinsson stóð í marki Drammen meirihluta leiksins og varði sex skot af tuttugu og níu sem hann fékk á sig eða 21% markvarsla.

Úrslit kvöldsins:

Kristianstad 27-36 Sävehof

Drammen 46-35 Kristiansand

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top