Jón Ólafur Þorsteinsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Í dag samþykkti bæjarráð Akureyrar samkomulag um uppbyggingu á langþráðri íþróttamiðstöð fyrir Íþróttafélagið Þór á félagssvæðinu í Glerárhverfi á Akureyri. Með undirrituðu samkomulagi er fullvíst að draumur Þórsara um eigin íþróttahús er loksins að verða veruleiki, og stefnt er að því að það verði tekið í notkun árið 2031. Það er Akureyri.net sem greinir frá. ,,Iðkendur hjá Þór stunda í dag æfingar á fimm stöðum í bænum utan félagssvæðisins. Í minnisblaði um verkefnið kemur fram að félagið búi við þá sérstöðu að 45% af iðkendum á aldrinum 5 til 19 ára geti ekki sótt æfingar á Þórssvæðinu," segir í frétt Akureyri.net Íþróttahúsið sjálft verður ekki smásmíði: Áætlað er að verkið kosti um 3–4,5 milljarða króna (verðlag janúar 2026). „Áframhaldandi uppbyggingu öflugrar íþróttaaðstöðu á félagssvæði Þórs tryggir hagkvæmari nýtingu innviða og skapar mikilvægan vettvang fyrir fjölbreytta íþróttaiðkun og heimili fyrir félagið þegar horft er til langs tíma,“ segir í minnisblaði Akureyrarbæjar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.