Meistaradeildin: Álaborg og Füchse Berlin komin áfram í 8-liða úrslit
Alex Nicodim / NurPhoto via AFP)

Fjórir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Tveir Íslendingar voru í eldlínunni að þessu sinni.

Bjarki Már Elísson og liðsfélagar hans í Veszprém töpuðu með einu marki gegn Kielce í heimsókn þeirra til Póllands í kvöld 36-35. Bjarki skoraði 3 mörk úr 3 skotum en það dugði ekki til. Tap Veszprém þýðir að Álaborg og Füchse Berlin eru örugg áfram í 8-liða úrslitin.

Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting töpuðu stórt fyrir HBC Nantes í Frakklandi í kvöld 38-27. Orri átti þó mjög góðan leik og skoraði 7 mörk úr 9 skotum og var næst markahæstur í liði Sporting á eftir Martim Costa sem gerði 8 mörk. Nicolas Tournat var atkvæðamestur fyrir Nantes með 9 mörk.

Füchse Berlin unnu 21-27 sigur á Dinamo Bucuresti þar sem Mathias Gidsel var eins og svo oft áður markahæstur hjá Berlínarrefunum með 8 mörk. Branko Vujović var markahæstur fyrir rúmenska liðið með 5 mörk.

Þá unnu Wisla Plock 28-25 sigur á Eurofarm Pelister þar sem Mitja Janc var markahæstur með 5 mörk.

Staðan í riðlunum eftir 11 umferðir er svona:

Standings provided by Sofascore
Standings provided by Sofascore

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top