Það að vera í formi hérna heima er ekki að vera í formi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elvar Örn Jónsson (Sævar Jónasson)

,,Það að vera í formi hérna heima er ekki að vera í formi," þessi orð lét Snorri Steinn Guðjónsson meðal annars falla um stöðuna hér heima í íslenska handboltanum. Hann kallar eftir því að fleiri leikmenn hér heima æfi meira og hækki ránna.

,,Ég held að við séum á pari hér heima og erum á ágætis róli. Ég held að við þurfum að hækka viðmið hvað varðar líkamlegt atgervi," sagði Snorri Steinn í hlaðvarpsþætti Handkastsins á dögunum þegar hann var spurður út í stöðu íslensks handbolta og hvort íslenskur handbolti væri að dragast aftur úr á einhverjum sviðum leiksins.

,,Höfum það alveg á hreinu að þetta er bara mín skoðun en ég held að það sem okkur finnst og það sem leikmönnum hér heima finnst að vera í formi er bara ekki að vera í formi. Ég vil sjá þá rá bara töluvert hærri."

Snorri Steinn segir að viðmiðið að vera í formi eigi að vera Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Elliði Snær Viðarsson og Elvar Örn Jónsson svo einhverjir séu nefndir.

,,Við getum ekki haft bara eitthvað annað viðmið. Þetta er mismunandi og það er alveg áskorun að setja einhverja tölu á allt og hvað það er að vera í formi. Þetta er líka hvernig þú upplifir þetta og sérð hvernig menn æfa, næra sig og hugsa um sig. Ég geri mér grein fyrir því að þetta eru 100% atvinnumenn og á dúndur launum. En einhvernveginn komust þeir þangað og yfirleitt er það þannig að þeir gera eitthvað meira heldur en aðrir og við þurfum fleiri þannig. Þetta er mín upplifun, eftir að hafa verið í þessum landsliðsbransa, sjálfur leikmaður og þjálfað Val. Það er svigrúm fyrir þetta hér heima.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top