Gerir fimm ára samning við Magdeburg
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dominik Kuzmanovic (Andreas Hillergren/TT / TT NEWS AGENCY / AFP)

Þýska stórliðið Magdeburg, hefur tilkynnt komu króatíska markvarðarins Dominik Kuzmanović sem gengur í raðir félagsins næsta sumar frá Gummersbach. Kuzmanović gerir fimm ára samning við Magdeburg.

Þar mun hann mynda markvarðarpar með landa sínum, Matej Mandić. Króatarnir munu taka að sér það stóra verkefni að leysa af hólmi Sergy Hernández og Nikola Portner sem yfirgefa báðir liðið í sumar.

„Með því að semja við Kuzmanovic fáum við ungan og hæfileikaríkan markvörð sem hefur verið á listanum okkar lengi. Ég er viss um að hann, ásamt Matej Mandić, muni hjálpa okkur að ná markmiðum okkar. Þeir tveir bæta hvor annan mjög vel upp tæknilega og virka frábærlega sem tvíeyki. Ég hlakka til að vinna með honum á komandi árum," sagði þjálfari Magdeburg, Bennet Wiegert.

Dominik Kuzmanović segir það mikinn heiður að ganga í raðir Magdeburg.

,,Ég er meðvitaður um hefðina, metnaðinn og ástríðuna sem einkennir þetta félag. Þess vegna er ég mjög spenntur fyrir nýju tímabili og þeim áskorunum sem framundan eru. Ég er sannfærður um að saman munum við upplifa margar sérstakar stundir og halda áfram að skrifa sögu félagsins.“

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top