Biosca (Gummersbach)
Spánverjinn, Ignacio Biosca hefur verið kynntur sem markvörður Gummersbach frá og með næsta sumri og fyllir hann skarð Dominik Kuzmanovic sem gengur í raðir Magdeburg á sama tíma. Biosca gengur í raðir Gummersbach frá franska liðinu Nantes en hann gekk í raðir Nantes í sumar frá ONE Veszprém. Biosca hefur verið duglegur að flakka á milli liða undanfarin ár. Biosca gerir samning við Gummersbach til ársins 2028 en orðrómur hefur verið uppi um það síðustu daga að Biosca staldri einungis stutt við hjá Gummersbach og gæti yfirgefið félagið strax sumarið 2027 en Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður Barcelona hefur verið orðaður við Gummersbach frá og með sumrinu 2027. Biosca sem er þrítugur hefur leikið með Wisla Plock, Nantes, Veszprém, Kadetten Schaffhausen, Ademar Leon og Barcelona.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.