Bjarni Fritzson (Sævar Jónasson)
Botnlið ÍR í Olís-deild karla tryggði sér í úrslit Powerade-bikarsins eftir dramatískan eins marks sigur á KA á Ásvöllum í kvöld 32-31 í ótrúlegum handboltaleik þar sem áhorfendur fengu allt fyrir peninginn. ÍR hafði forystu meira og minna allan leikinn en liðið var þremur mörkum yfir í hálfleik 16-13 en ÍR varð fyrir áfalli snemma leiks er Baldur Fritz Bjarnason markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar meiddist og kom ekkert meira við sögu í leiknum. ÍR komst fimm mörkum yfir í stöðunni 27-22 þegar 15 mínútur voru eftir af leiknum. Þá kom bakslag í leik ÍR og KA-menn gengu á lagið. KA vann næstu mínútur 8-2 og voru skyndilega komnir yfir í leiknum 30-29 í fyrsta skipti. Þetta var hinsvegar í eina skiptið sem KA komst yfir í leiknum og Sveinn Brynjar Agnarsson reyndist hetja ÍR sem skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok en KA-menn voru tveimur færri í lokavörn sinni. Þar með er ljóst að ÍR mætir Haukum í úrslitaleik Powerade-bikarsins á laugardagskvöldið. Jökull Blöndal Björnsson var markahæstur í liði ÍR með tíu mörk og Róbert Snær Örvarsson skoraði sex mörk. Alexander Ásgrímsson varði tíu skot í marki ÍR með 26% markvörslu. Hjá KA voru Einar Rafn Eiðsson og Giorgi Dikhaminjia markahæstir með sjö mörk. Dagur Gautason skoraði fimm mörk úr fimm skotum. Ágúst Elí Björgvinsson varði 13 skot í marki KA með 37% markvörslu en Bruno Bernat varði tvö skot, 18% markvarsla. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.