Óli P. Olsen er látinn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Óli P. Olsen (

Óli P. Olsen fyrrum handknattleiksdómari er látinn. Hann fæddist 1943 og lést 10. febrúar síðastliðinn eftir erfiða baráttu við krabbamein.  

Óli byrjaði að dæma handbolta árið 1967 og dæmdi allt til ársins 1995. Lengst af dæmdi hann með Gunnlaugi Hjálmarssyni en líka með þeim Gunnari Kjartanssyni og Ólafi Erni Haraldssyni ásamt fleirum. Hann varð milliríkjadómari 1977 og lauk þeim ferli árið 1993 þegar hann varð fimmtugur.  Eftir það starfaði Óli í mörg ár sem eftirlitsmaður á Íslandi.  

Óli var líka knattspyrnudómari í fremstu röð bæði hér heima og erlendis og sinnti hann dómgæslu í báðum greinum í tugi ára.  

Fjölskyldu, ættingjum og vinum Óla Olsen eru sendar innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls hans.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top