Framkvæmdastjóri HSÍ veit ekki meira heldur en aðrir um stöðuna á nýrri þjóðarhöll
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sólveig Jónsdóttir (HSÍ)

Framkvæmdastjóri HSÍ, Sólveig Jónsdóttir segir að það væri að koma í ljós hvort áhyggjur um það hvort ný þjóðarhöll verði risin fyrir heimsmeistaramótið 2031 sem á að fara að hluta fram hér á Íslandi. Þetta sagði hún í viðtali við Vísi.

,,Þjóðarhöllin verður risin og þetta verður geggjað. Það verður spennandi að setja miðasöluna í gang," sagði Sólveig sem tók við sem framkvæmdastjóri HSÍ í síðasta mánuði.

Í kjölfarið var hún spurðurð hvernig hún skynjar hljóðið gagnvart þessu verkefni og hvort allt væri komið á blússandi gang hvað þetta verkefni varðar?

,,Ég veit ekki meira heldur en aðrir. Ég hef ekki neitt annað en trú á fólkinu sem er búið að vera berjast fyrir þessu öll þessi ár. Ekki neitt nema trú."

Þannig áhyggjur eru óþarfar hvað þetta varðar?

„Sjáum til.“

Stefnt er að því að Íslandi haldi heimsmeistaramót karla í janúar 2031 ásamt Noregi og Danmörku. Þar er gert ráð fyrir því að Ísland verði með eina keppnishöll á mótinu sem rúmar 8,600 manns í sæti. Aðrir leikir mótsins fara fram í Kaupmannahöfn og Herning í Danmörku og Bærum og Þrándheimi í Noregi.

Gert er ráð fyrir að tveir riðlar og einn milliriðill verði leikinn á Íslandi en til þess þarf ný þjóðarhöll að rísa.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top