Hannes Höskuldsson (Sigurður Ástgeirsson)
Hannes Höskuldsson leikmaður Selfossar var að vonum svekktur eftir tap liðsins gegn Þór í leik sem fór fram á Selfossi í dag. Leikurinn endaði 33-35 fyrir norðanmönnum. Hannes Höskuldsson skoraði ellefu mörk í leiknum en hann talar um að vörn og markvarsla hafi brugðist í dag í þetta mikilvægum leik. Hannes Höskuldsson fékk högg á öxlina undir lok leiksins en segir það ekkert vera til að hafa áhyggjur af.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.