Þorsteinn Leó Gunnarsson (Kristinn Steinn Traustason)
FC Porto mætti í Aguas Santas í Portúgölsku deildinni í kvöld og lauk leiknum með sex marka sigri Porto 22-28. Þorsteinn Leó Gunnarsson lék með Porto í dag og skoraði fjögur mörk. Porto situr í öðru sæti deildarinnar þremur stigum á eftir Sporting. Næstu leikur hjá Porto verður á þriðjudag þegar liðið mætir Granollers. Í Norður Makedóníu mættust Alkaloid og Vardar í toppslag og endaði leikurinn með 25-28 sigri Vardar sem styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar. Úlfar Páll Monsi Þórðarson leikur með Alkaloid og skoraði hann tvö mörk í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.