Viggó Kristjánsson - HC Erlangen (Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP)
Tveir leikir fóru fram í Þýsku úrvallsdeildinni í kvöld. Kiel og Flensborg unnu bæði sína leiki en þau sitja í þriðja og fjórða sæti Þýsku deildarinnar. Göppingen mætti Kiel í leik sem lauk fyrr í kvöld. Staðan í hálfleik var 10-12 fyrir Kiel og Kiel náði að auka forskotið í síðari hálfleik og endaði leikurinn með 24-28 sigri Kiel. Ýmir Örn Gíslason lék með Göppingen enomst ekki á blað í kvöld. Erlangen mætti þá Flensburg í leik sem endaði 29-34 fyrir Flensburg eftir að Flensburg leiddi í hálfleik 17-13. Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson leika með Erlangen. Andri Már Rúnarsson skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar. Viggó Kristjánsson náði ekki að skora í kvöld en var með þrjár stoðsendingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.