Mistókst að gulltryggja sér deildarmeistaratitilinn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katla María Magnúsdóttir (Eyjólfur Garðarsson)

Katla María Magnúsdóttir skoraði tvö mörk úr vítaköstum þegar lið hennar Holstebro tapaði fyrir Ajax 26-22, í næst efstu deild í Danmörku í gær. Katla María gekk í raðir Holstebro fyrir tímabilið en kærasti hennar, Jóhannes Berg Andrason leikur með karlaliði Tvis Holstebro.

Þetta var aðeins annað tap Holstebro í deildinni á tímabilinu en liðið er í efsta sæti deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. Ajax er eftir sigurinn hinsvegar sex stigum á eftir í öðru sæti.

Holstebro hafði með sigri getað tryggt sér sæti upp í úrvalsdeildinni en eftir tapið er ljóst að liðið þarf þrjú stig í fjórum síðustu leikjum tímabilsins.

Ajax er eina liðið sem getur náð Holstebro að stigum en eitt lið vinnur sér beint þátttökurétt í efstu deild á næstu leiktíð.

Síðustu leiki Holstebro í deildinni eru gegn Saeby, Eistrup/Haervejen, Roskilde og Sondermarkens. Saeby er meðal annars neðsta liðið í deildinni og Eistrup/Haervejen og Sondermarkens eru í 8. og 9. sæti deildarinnar af 12 talsins.

Það þyrfti því eitthvað rosalegt að gerast svo Katla María og liðsfélagar hennar í Holstebro vinni ekki dönsku B-deildina úr því sem komið er.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top