Norðurlöndin: Amo sótti stig til Malmö
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Arnar Birkir Hálfdánsson (Amo)

Þrjú Íslendingalið áttu leik í dag í Svíþjóð og Noregi en Amo mætti í heimsókn til Malmö í sænsku úrvalsdeildinni á meðan Kolstad freistaði þess að minnka mun Elverum á toppi norsku úrvalsdeildarinnar.

Amo gerði góða ferð til Malmö og sótti gott stig í miklum markaleik, lokatölur urðu 35-35. Arnar Birkir Hálfdánsson var næst bestur í liði gestanna en hann var með átta mörk úr tíu skotum, gaf þrjár stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki. Amo situr áfram í tíunda sæti deildarinnar en fjarlægðist meira fallsætin og þeir eygja áfram von að ná upp í topp átta.

Í Noregi unnu Kolstad torsóttan sigur á Sandefjord á útivelli, 22-24 en liðið var undir lengst af leiksins en náði undir lokin að klára sigurinn og taka 2 stig með heim. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum. Sigurjón Guðmundsson fékk ekkert að spreyta sig í markinu og Benedikt Gunnar Óskarsson var ekki með að þessu sinni.

Drammen gerði jafntefli á útivelli gegn Arendal í hörkuleik, 31-31 urðu lokatölurnar í leiknum. Ísak Steinsson var í markinu meirihluta leiksins og varði sex skot af þeim tuttugu og níu sem hann fékk á sig eða 21% markvarsla.

Úrslit dagsins:

Malmö 35-35 Amo

Sandefjord 22-24 Kolstad

Arendal 31-31 Drammen

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top