Fjögur íslensk mörk í jafntefli Blomberg Lippe
INA FASSBENDER / AFP

Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar í jafntefli Blomberg-Lippe gegn ungverska liðinu MOL Esztergomi í síðustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar sem fram fór í dag.

Lokatölur 31-31 í jöfnum og spennandi leik þar sem Esztergomi leiddi í hálfleik 13-15 en leikurinn fór fram í Þýskalandi. Ungverska liðið náði mest fjögurra marka forystu í seinni hálfleiknum en Blomberg-Lippe komu til baka og jöfnuðu metin í 24-24.

Íslendingaliðið komst einu sinni yfir í leiknum í stöðunni 27-26 en lokatölur 31-31. Leikurinn skipti hvorugu liðinu máli upp á framhaldið í keppninni. Ungverska liðið var þegar búið að tryggja sér áfram í keppninni á meðan ljóst var að Blomberg-Lippe kæmist ekki upp úr riðlinum.

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði eitt mark í leiknum en Elín Rósa Magnúsdóttir komst ekki á blað í leiknum.

MOL Esztergom og Nykøbing Falster komust bæði upp úr riðlinum með 9 og 7 stig en Blomberg-Lippe ásamt franska liðinu Chambray Touraine enduðu með fjögur stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top