Handkastið Podcast (
Sérfræðingurinn settist í Rapyd stúdíóið með þeim Benedikt Grétarssyni og Davíð Má Kristinssyni. Farið var yfir málin í Olís-deildum karla og kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir í báðum deildum. Söguleg spenna er í deildunum báðum og allt getur gerst. Ofan í það þá er bikarvika framundan þar sem krýndir verða bikarmeistarar næstu helgi. Valur er á toppi Olís-deildar karla og kvenna en enn geta fimm lið fallið í Olís-deild karla þegar þrjár umferðir eru eftir og tvö lið eru í harðri fallbaráttu í Olís-deild kvenna. Á miðvikudaginn fara fram tveir undanúrslitaleikir í Powerade-bikar kvenna og á fimmtudaginn leika karlarnir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.