Sænsk landsliðskona útskýrir afhverju hún tók sér pásu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Nina Koppang (THOMAS KIENZLE / AFP)

Það vakti athygli þegar danska félagið Team Esbjerg tilkynnti í dönsku úrvalsdeildinni tilkynnti að Nina Koppang væri búin að taka sér hlé frá handbolta vegna persónulegra ástæðna. Nú hefur Koppang stígið fram og útskýrt ástæðuna fyrir ákvörðun sinni.

Nina Koppang verður 24 ára í maí á þessu og lék með sænska landsliðinu á heimsmeistaramótinu undir lok síðasta árs. Hún lék með Savehof í upphafi ferils síns áður en hún skipti yfir til Vipers í Noregi. Vipers varð hinsvegar gjaldþrota í upphafi síðasta árs.

Hún skipti því yfir í stórlið Team Esbjerg í Danmörku í janúar í fyrra en eftir ár þar ákvað hún að taka sér hlé frá handbolta.

,,Stundum þarf maður að stíga eitt skref til baka, jafnvel frá því sem maður elskar,“ skrifaði hún í Instagram færslu sinni.

„Ég hef áttað mig á að það gengur ekki alltaf að ýta sér áfram. Að æfa meira, reyna meira og vera með meiri aga er ekki alltaf svarið. Stundum þarf maður að taka eitt skref til baka, jafnvel frá því sem maður elskar,“ skrifar hægri skyttan.

Í færslunni upplýsir Koppang að ákvörðunin snúist um hennar andlega líðan.

„Fyrir mig snýst þetta núna um að hugsa um mína andlegu heilsu og gefa mér pláss til að hlusta á hvað ég þarf til að líða vel.“

Koppang tók ákvörðunina eftir heimsmeistaramótið í desember en hún á að baki í kringum 50 landsleiki fyrir sænska landsliðið. Hversu lengi landsliðskonan verður fjarri er enn óljóst.

„Þetta er tilfinning sem hefur vaxið með tímanum. Ég er sátt með þessa ákvörðun og stend með henni og ég er sannfærð um að við munum sjást aftur á handboltavellinum þegar réttur tími kemur,“ skrifar Koppang.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top