Afturelding vann mikilvægan eins marks sigur á Stjörnunni í 19.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku og unnu þar með sinn fyrsta leik á nýju ári eftir þrjú töp í röð. Taphryna Stjörnunnar heldur hinsvegar áfram en liðið hefur tapað átta leikjum í röð og eru komnar niður í 11.sæti deildarinnar með 10 stig, þremur stigum meira en ÍR sem er á botni deildarinnar. Þrjár umferðir eru eftir af deildinni. ,,Það var alveg vitað að þetta yrði jafn leikur. Afturelding tapað þremur leikjum í röð og Stjarnan gaf Haukum alvöru mótspyrnu í síðustu umferð. Afturelding var ekkert að fara ýta allt í einu á “on” takkann og vinna með tíu mörkum. Stórt credit á Stjörnuna hinsvegar, þeir börðust og gáfu allt í þetta og voru hreinlega óheppnir að vinna ekki leikinn. Þeir eru oft mjög slakir á loka mínútunum en auðvitað er ákveðinn fórnarkostnaður hjá þeim. Þeir eru að gefa fullt af ungum leikmönnum tækifæri," sagði Davíð Már Kristinsson í nýjasta þætti Handkastsins þar sem farið var yfir leikina í 19.umferð Olís-deildar karla og 18.umferð Olís-deildar kvenna. ,,Afturelding fór í 7 á 6 í lokin og það kláraði leikinn fyrir þá. Þorvaldur Tryggvason var frábær á línunni og kláraði sín færi vel. Þeir unnu þennan leik í blálokin," bætti Davíð við. Stjarnan hefur nú tapað þremur leikjum í röð með 1-2 mörkum. Stjarnan hefur tapað átta leikjum í röð í Olís-deildinni og fimm af þeim tapleikjum hafa tapast með einu eða tveimur mörkum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.