Niels Versteijnen - lemgo (Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)
Tveir leikir voru á dagskrá í dag er 23.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð. Fyrri leikur dagsins fór fram er Lemgo Lippe bauð Einari Þorsteini og félögum hans í Hamburg í heimsókn. Lemgo tók frumkvæðið snemma leiks sem endaði allan leikinn með áhlaupum Hamburg manna sem hélt þeim að nokkurru leiti inn í leiknum. Lokatölur 39-32 eftir að hálfleikstölur voru 18-15. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Tim Suton með 10 mörk fyrir Lemgo. Eisenach bauð Erlangan í heimsókn í seinni leik dagsins. Leikurinn var alveg frá byrjun en undir lok fyrri hálfleiks tók Eisenach frumkvæðið og fór með þriggja marka forskot inn til búningsklefa. Í seinni hálfleik jafnaði Erlangan snemma og urðu lokamínúturnar afar spennandi. Eisenach jafnaði leikinn þegar um fimmtíu sekúndur voru eftir, Erlangan náði ekki að nýta sókn sína og urðu lokatölur 25-25. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Felix Aellen með 11 mörk fyrir Eisenach. Úrslit dagsins: Lemgo Lippe-Hamburg 39-32 Eisenach-Erlangan 25-25

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.