Viggó Kristjánsson gerði sér lítið fyrir í gærkvöldi og braut þúsund marka múrinn í þýsku úrvalsdeildinni en hann skoraði þrjú mörk í 25-25 jafntefli Erlangen gegn Eisenach á útivelli í 22.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Þessi 1000 mörk hefur Viggó gert með fjórum félögum í Þýskalandi en hann gekk í raðir Leipzig árið 2019 frá West Wien í Austurríki. Þaðan fór hann til Wetzlar áður en hann gekk í raðir 1898 Stuttgart og lék þar tvö tímabil. Í kjölfarið fór hann aftur til Leipzig en hann var síðan keyptur til Erlangen í janúar á síðasta ári og er á sínu öðru ári með Erlangen.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.