Haukar eru bikarmeistarar í karlaflokki tímabilið 2025/2026 eftir sigur á ÍR í úrslitum Powerade-bikarsins á heimavelli 28-21. Staðan í hálfleik var 14-6 Haukum í vil og það sást snemma leiks hvort liðið væri að fara vinna þennan leik. Með Grétar Ara Guðjónsson í þvílíkum ham í marki Hauka reyndist það erfitt fyrir ÍR-inga að koma boltanum í markið og eins og hálfleikstölurnar gefa til kynna þá gátu ÍR-ingar á köflum ekki keypt sér mark. Það var síðan formsatriði fyrir Hauka að klára leikinn í seinni hálfleik en ÍR-ingar bitu frá sér og geta gengið stoltir frá sínu. Birkir Snær Steinsson og Freyr Aronsson voru markahæstir í liði Hauka með sex mörk í leiknum og Össur Haraldsson skoraði fjögur. Hjá ÍR var Bernard Kristján Darkoh markahæstur með sjö mörk. Grétar Ari Guðjónsson varði 19 skot í marki Hauka og var með rúmlega 50% markvörslu. Ólafur Rafn Gíslason og Alexander Ásgrímsson vörðu sitthvor fimm skotin í marki ÍR. Freyr Aronsson var valinn mikilvægasti leikmaður bikarhelgarinnar en hann skoraði sex mörk í leiknum og gaf níu stoðsendingar. Til hamingju Haukar! Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.