,,Ég er hrikalega ánægður og hrikalega stolltur og ég í rauninni get ekki sagt neitt annað." voru fyrstu viðbrögð Antons Rúnarssonar þjálfara Vals en liðið varð bikarmeistari árið 2026 eftir sigur á Haukum í gríðarlega spennandi leik. ,,Þetta er bikarúrslitaleikur milli tveggja góðra liða og það koma sveiflur í svona leikjum og við náðum aðeins að laga það og það er bara algjör veisla að vera í svona bikarúrslitaleikjum Þetta var fyrsti stóri titill Antons Rúnarssonar sem aðalþjálfari Vals og þetta var gríðarlega þýðingarmikið fyrir Anton. ,,Þetta er alltaf jafn gaman þótt þú sért leikmaður eða þjálfari eða aðstoðarþjálfari og þetta er bara alltar jafn gaman." sagði Anton að lokum þegar Handkastið ræddi við hann eftir að bikarinn fór á loft á Ásvöllum en hann segir að það verði eitthvað fagnað þessu í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.